Skriflegur ráðningarsamningur

Þegar þú ræður þig í vinnu er mikilvægt að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi í upphafi.
Í ráðningarsamningi þurfa eftirtalin atriði m.a. að koma fram: nafn starfsmanns og atvinnurekanda, vinnustaður, tegund starfs eða stutt lýsing á starfinu, fyrsti starfsdagur, lengd ráðningar sé hún tímabundin, uppsagnarfrestur, mánaðar- eða vikulaun, lengd vinnudags, lífeyrissjóður og tilvísun til kjarasamnings.

Sé ekki kveðið á um tímalengd ráðningar er ráðning ótímabundin þ.e. ekki er ákveðið hvenær starfslok muni eiga sér stað. Sé ráðning ótímabundin getur vinnuveitandi ekki sagt þér upp störfum nema veita þér þann uppsagnarfrest sem þér ber samkvæmt kjarasamningi.

Hafðu samninginn alltaf skriflegan

Mikilvægt er að hafa í huga að ákvæði í ráðningarsamningi mega ekki veita þér lakari rétt en kveðið er á um í kjarasamningi.

Hér má sjá dæmi um ráðningarsamning.

Mundu að semja með skriflegum hætti við atvinnurekanda, bæði þegar þú ræður þig í starf en líka þegar gerðar eru breytingar á starfskjörum þínum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei